Vasa 2007

Vasa 2007

Fréttir og kveðjur til keppenda

Tölfræðilegar vangaveltur

11. mars

Ritstjóri biðst velvirðingar á því að dregist hefur að koma þessari kveðju á framfæri, en það gerist hér með.

Sæll Þórarinn.

Mig langar til að þakka fyrir þessa frábæru síðu. Og þakka stuðningshópnum sem gaf súkkulaði ópal og döðlur við línuna. Það er gaman að fá að vera með í þessum hóp og vonandi verður þetta árlegur viðburður.

Ég sendi hér smá vísindavinnu Páls Gíslasonar sem var með mér og Skarpa í gistingu ásamt Arnfríði konu sinni. Þar kemur samhengi milli brottfalls og hitastigs í Vasa.

Vasapælingar.xls (100 KB)

Kveðja.
Magnús Björnsson

Kveðja frá Tótu

7. mars

Mig langaði til að koma á framfæri kæru þakklæti til ritstjóra fyrir vandaða heimasíðu og dygga stöðu á fréttavaktinni á Vasa-daginn sem og á hálf-Vasa-daginn. Það var rosalega spennandi og skemmtilegt að fá tækifæri til að fylgjast með framgöngu keppenda og lifa sig inn í aðstæður. Tímataflan heilstæða kom mjög vel út og gaf skýrt og greinargott yfirlit yfir stöðu mála.

Ég tek undir hamingjuóskir til Dóra og Önnu Kristínar. Það var glæsilegt hjá þér Dóri að bæta tíma þinn við þessara erfiðu aðstæður. Mér fannst þetta rosalega flott hjá þér Anna Kristín og er stolt af þér, þú skákaðir mörgum körlunum þarna!

Einnig dáðist ég að samstöðu ykkar mága Skarphéðins og Magga. Til hamingju með ykkar árangur.

Jafnframt sendi ég mínar bestu kveðjur og hamingjuóskir til austanmanna, þið stóðuð ykkur mjög vel.

Kær kveðja, Tóta.

Baráttukveðjur frá BNA

7. mars

Kæru Vasa-vinir

Það var með aðdáun sem ég fylgdist með ævintýrum ykkar í stafrænni lýsingu ritstjóra á sunnudaginn. Þið unnuð öll mikið þrekvirki og mér fannst ferlega súrt að vera ekki þarna með ykkur. Með hliðsjón af færinu þá sjáið þið að þetta var hrein taktísk ákvörðun hjá mér að sitja heima í ár og liður í stærri strategíu (Operation Vasa Warrior). Ég heyri í kringum mig að 2009 sé árið til að taka þessa keppni og sýna sænskum bláberjum og krækilyngi hvar Davíð keppti ölið. Gæti þá jafnvel verið að fleiri úr Flyðrugrandahópnum sláist með í för. Við höldum öllum möguleikum opnum.

Á sama tíma og ég vil óska öllum keppendum til hamingju með þrekvirkið og þátttökuna þá langar mig sérstaklega til að gefa Önnu Kristínu klapp á bakið fyrir það að koma, sjá og sigra þessa keppni! Svona á að gera þetta kona! Slíkur keppnisandi blæs öllum Vasa-wannabies, sérstaklega okkur stelpunum, byr undir báða vængi.

Hamingjuóskir og saknaðarkveðjur að vestan,
Birna

Kveðja frá Skarphéðni

5. mars

Ég vil þakka ritstjóra fyrir fróðlegar og skemmtilegar upplýsingar frá Vasagöngunni. Fólk langt út fyrir raðir ykkar fjölskyldu hefur fylgst með allri veislunni. Frábært að sjá ykkur á hliðarlínunni með fánana,súkkulaðið og döðlurnar. Það gerði kraftaverk á bensínlausum.

Kær kveðja til allra
Skarphéðinn

Vasa 2007: Dagen derpå

5. mars

Allir Vasafarar nær og fjær og ættmennin spenntu á skerinu (og víðar).

Þá er spennandi sunnudagur að baki. Hann hófst snemma hjá okkur mörgum - ekki bara hjá keppendum. Við Hans hófum sjónvarpsgláp kl. 6.45 og fylgdumst með til skiptis hjá frændum okkar Svíum og Norðmönnum. Inn á milli var kíkt í ferðatölvuna, sem að sjálfsögðu var höfð með í rúmið. Það var nokkuð ljóst af athugasemdum fréttamanna og viðtölum við þátttakendur að þetta yrði erfitt, því grip í skíðum var ekkert og menn þurftu að stjaka sig upp sumar brekkurnar. Eins var viðtal við nokkur bláber, sem sögðu að brautin hefði verið erfið og nær ekkert spor fyrir þá síðustu.

Af fréttum að dæma virtist svo sem u.þ.b. 3000 manns hafi ekki komist alla leið til fyrstu stöðvar í Mora í tíma og var jafnvel talað um að seinka reipisstrekkingunni þar - hvað svo sem varð úr því. Það var sumsé afar spennandi að fylgjast með ykkur öllum. Það er meira að segja svo að gamlir ljósastaurar verða grænir aftur og eldri töntur fái fiðring í fætur. Liggur við að menn setji sér markmið að rifja upp námsárin í Noregi með öllum skíðagöngunum og reyna að komast með næst, annað hvort í hálfa eða heila. Þetta yrði þó varla fyrr en eftir tvö ár - formið er svo dapurt.

Innilegar hamingjuóskir til Dóra bróður og Önnu Kristínar fyrir glæsilegan árangur. Og að sjálfsögðu er tekið undir krýningu Þórarins og Siggu á henni sem Vasadrottningu fjölskyldunnar. Þeir mágarnir Maggi og Skarpi fá líka bestu hamingjuóskir ásamt Þóroddi Þóroddssyni skóla- og söngbróður.

Ragnheiður Helga

Kveðjur frá Birni Má

4. mars

Mig langar að senda Þórarinsfrændliðinu öllu, hr austmönnum og vinunum öllum og kunningjunum aðdáunarkveðjur, því ljóst er að þetta var með allra erfiðustu Vasaloppum. Léleg spor, hiti að sveiflast kringum frostmarkið og því erfitt að hafa festu. Afrek ykkar eru því enn meiri en ella.

Opna sporið á mánudaginn var afskaplega skemmtileg upplifun, þótt fámennt væri þar reyndar Íslendingaliðinu.

Sporin héldu vel en dálítið var þungt, því að það snjóaði dálítið mestallan daginn. Auðvitað mikill munur að alltaf var nóg pláss fyrir alla í sporinu með tæplega 3000 þátttakendur. Reyndar fór Stafett vasa fram á sama tíma en ég varð ekki var við annað en að það færi vel saman, keppendurnir í því geystust öðru hverju fram úr og voru horfnir um leið.

Í dag hef ég svo fylgst spenntur með ykkur með annað augað á sjónvarpinu og hitt á tölvunni, en sjálfur sitjandi þægilega í hægindastól.

Svo skrýtin er nú samt þessi della að ég hefði vissulega miklu frekar viljað vera þarna með ykkur í baráttunni.

Bestu kveðjur
Björn Már Ólafsson

Framvinda (forskot á reipið)

Keppnisdaginn 4. mars
Frændlið 10,5km 23,7km 34,5km 47,1km 61,7km 70,9km81,1kmMora(90)
Halldór +1 klst +1 klst +1 klst +2 klst +2 klst3 klst +3 klst 8:18:15
Sissý 34 mín -10
Heddý 38 3 1 -9
Jóhannes 25 -21
Sigurður 39 2
Jón Þór 39 16 2 -10
Skúli 38 ? 1 -4
Sigurpáll 32 10 -2 -15
Borghildur 42 6 -12
Sigurbjörg 34 10 -12
Anna Kristín 41 42 50 46 +1 klst +1 klst +1 klst9:50:13
Austmenn 10,5km 23,7km 34,5km 47,1km 61,7km 70,9km81,1kmMora(90)
Helgi 15 mín 12 6 6 8 11 30 11:26:04
Kristófer 26 13 8 -15
Óttar 42 31 25 10 5 2 20 11:35:09
Pétur 50 46 42 27 18 16 28 11:26:04
Þór 26 13 9 17 15 35 +1 klst10:30:37

Lokaorð ritstjóra

4. mars - 19:35

Jæja, þá er búið að harðlæsa markinu í Mora og komið að því að ritstjóri geri upp daginn.

Austmenn sem enn voru í sporinu hafa allir skilað sér í mark; Helgi á 11:26:04, Óttar á 11:35:09 og Pétur á 11:26:04 (þeir Helgi og Pétur virðast hafa verið samferða yfir marklínuna).

Af öðrum þátttakendum sem vefstjóri var beðinn um að setja upp vísanir á er það að frétta að Magnús og Skarphéðinn voru einnig samferða í mark á 9:54:53. Sveinn Ásgeirsson kláraði á sérlega glæsilegum 7:25:18.

Baldur fóstbróðir Þórarinssona kláraði að vanda með glæsibrag; 7:41:18 en náði þó ekki að halda í Þórodd fóstbróðurbróðir sem gekk á 7:38:42. Þóroddur Þóroddsson kláraði á 11:28:14 og Jörundur Traustason á 8:21:23. Gerður Steinþórsdóttir fékk reipið í Risberg.

Ekki gekk reipisbrennimerktum keppendum af ættlið ritstjóra að hreinsa af sér stimpilinn og nú er að sjá hvort þeir geti ekki lært einhver trix af austmönnum og skili sér í mark með Birnu frænku að ári. Hver veit...

Stöðutaflan sem ritstjóra vitjaðist í svefnrofunum í morgun reyndist vel og ef leikurinn verður endurtekinn að ári er næsta víst að töflutæknin verður fínpússuð og nýtt sem aðalheimild um gang mála.

Samkvæmt talningum samsvara raunheimsóknir (að frátöldum þekktum leitarvélum) um 1300 síðuflettingum í dag þegar þessi orð eru rituð. Ritstjóri ber sjálfur ábyrgð á hátt í 100 þeirra (enda þurfti að sannreyna allar viðbætur og snurfusa töflubirtinguna).

Þar með lýkur þessum keppnisdegi, en hver veit nema vísukorn, reynslusögur og myndir eigi eftir að rjátlast inn á næstu dögum og vikum.

Þökk sé þeim er rituðu og lásu,
Þórarinn Stefánsson

Aðalkeppnisdagurinn

4. mars - 18:40

Tek undir hamingjuóskir til Önnu Kristínar - frábært að Þórarinshópurinn eigi sér verðugan kvenfulltrúa!

Gaman að sjá vasklega framgöngu Austmanna og annarra vina og vandamanna. Samgleðst ykkur og dáist af krafti ykkar.

Kveðja,
Kidda


4. mars - 17:55

Elskurnar mínar. Ég sendi ykkur mínar allra bestu kveðjur. Þið eruð öll hetjur, svo sannarlega. Það er buið að vera gaman að fylgjast með ykkur hérna á netinu.

Hlakka til að sjá ykkur, knús og kossar
Mamma Gústa


4. mars - 17:40

Þá eru allir Austmenn (utan Kristófers) komnir gegnum Eldris.

Lyktin af reipinu í Hökberg hefur virkað hvetjandi á Óttar sem hefur bætt stöðu sína verulega. Því er ekkert sem bendir til annars en að þeir skili sér allir í mark, þangað sem Þór er þegar kominn á tímanum 10:30:37 í sæti 9.230.

Nú tekur ritstjóri sér færsluhlé, en stefnir á samantekt í lok dags.


4. mars - 17:25

Ég vil byrja á því að þakka ritstjóra fyrir að uppfæra okkur nýjustu upplýsingum og miðla til okkar sem erum enn í náttfötunum heima. Ég er búinn að vera svo spenntur að ég hafði mig varla í betri föt. Ég og fjölskyldan viljum færa öllum Vasahetjum dagsins lof fyrir frábæran árangur. Innilegar hamingju óskir til Dóra frænda fyrir enn einn frábæran sigurinn.

En ánægðust erum við með sjá að Anna Kristín er búin að skila sér í mark á frábærum tíma (undir 10 tímum!). Hreint frábært afrek og gaman að fá fyrsta kvenkyns reynsluboltann í hópinn. Öllum þeim sem sitja nú í Gosphus með þreytta vöðva og hugsanleg sár á sálinni fyrir að hafa lent í reipisstrekkingu. Þið eigið alla okkar samúð, en vonum að þið hafið notið dagsins og upplifunarinnar til hins ýtrasta. Enn og aftur innilega til hamingju.

Nu er ekkert eftir nema að lyfta glasi og skála fyrir hetjunum.

Ykkar skál!

Skål

Kv.
Þórarinn Alvar og fjölskylda í Barmahlíðinni.


4. mars - 17:02

Heil og sæl.

Til hamingju Halldór með frábæran árangur. Þú fórst þetta létt og lipurlega og bættir tímann þinn verulega eftir því sem fréttir herma.

Anna Kristín þú ert algjör hetja í okkar augum. Stórkostlegt afrek að fara alla þessa leið og það á innan við tíu tímum!

Innilega til hamingju. Þú ert hér með krýnd Vasadrottning!

Kærar kveðjur til allra
Sigga og Þórarinn


4. mars - 16:50

Þá er Anna Kristín komin í mark á glæsilegum tíma og lendir í 510. sæti!

Austmenn eru allir komnir gegnum Hökberg, en heldur er ritstjóri farinn að verða áhyggjufullur fyrir hönd Óttars. Þór hefur hins vegar spennt á sig þotuhreyfilinn og er væntanlegur í mark eftir um 50 mínútur.


4. mars - 15:30

Halldór er kominn í mark á 8:18:15, sem er bæting um hálftíma frá í fyrra. Þá endaði hann í sæti 7.651, en nú í 5.958 sem er bæting um 1693 sæti.

Innilegar hamingjuóskir til Dóra - glæsileg frammistaða eins og við var að búast.

Kær kveðja,
Kidda


4. mars - 15:10

Austmenn komast allir gegnum Oxberg, en Óttar má ekki hægja mikið á sér. Helgi virðist halda jöfnu tempói.

Halldór ætti að skila sér í mark innan skamms.


4. mars - 14:03

Höggvast nú stór skörð

Miðpunkturinn Evertsberg hefur aldeilis reynst afdrifaríkur og sýnist ritstjóra að af fjölskylduhópnum séu aðeins Dóri og Anna Kristín eftir í brautinni.

Ekki hefur fengist staðfest fyrir alla keppendur að þeir hafi hætt, en það þýðir þá líklega að viðkomandi hafi ekki skilað af sér tímamæliflögunni. Sigurpáli virðist hafa tekist að lauma sér undir reipið í Risberg (a.m.k. miðað við tímana) en það ekki dugað til í Evertsberg.

Hjá Austmönnum hefur Kristófer nú lent á reipinu en hinir fjórir halda ótrauðir áfram og virðast á nokkuð traustu róli, þótt Helgi megi ekki hægja mikið á.


4. mars - 12:20

Spennan er gríííðarleg!

Nú er aldeilis ýmislegt í frásögur færandi.

Brottföll Jóa og Sissýar hafa verið staðfest. Eins og fjallkóngurinn bendir á hér örlítið neðar virðist kaflinn milli Smågan og Mångsbodarna hafa verið óvenju erfiður og þeir ættarkeppendur sem skilað hafa sér til Risberg eru margir afskaplega tæpir á klukkunni.

Blái Lótusinn Skúli virðist hafa gripið til þeirrar óvenjulegu leikfléttu að snúa á reipisstrekkjara með því að taka sveig framhjá Mångsbodarna því hann er enn í keppninni. En þeir bræður Lótus og Pardus mega vart tæpar standa.

Það stefnir því áfram í spennu og nagaðar neglur aðstandenda.

Næsta reipi verður strekkt kl. 13:30 að íslenskum tíma.

Austmenn eru allir komnir gegnum Risberg og eru reynsluboltarnir Óttar og Pétur í góðum málum, en bláberin mega ekki slá slöku við.

Ritstjóri steingleymdi að vísa á myndir frá morgninum og ræsingunni, en gerir það hér með.


4. mars - 11:35

Í tilefni dagsins ætlum við í fá lánaðan SAAB hjá tengdó til þess að keyra í IKEA,og að sjálfsögðu verður ABBA í geislaspilaranum. Hvað er málið með þessi fjögurra stafa orð hjá Svíunum?

Í kvöldmat ætlum við að sjálfsögðu að fá okkur sænskar kjötbollur. En ætli sé ekki best að senda VASA hetjunum hrikalegar baráttukveðjur, gangi ykkur vel.

Kv.
Nökkvi og Ásdís Wöhler.


4. mars - 11:15

Við Sigga fylgjumst spennnt með gangi mála hér á Flyðrugrandanum. Halldór þýtur áfram. Bogga og dæturnar tvær liða fram hratt og örugglega og eru að skáka vönum köppum. En greinilegt er að þetta verður ekki auðvelt fyrir alla.

Kaflinn til Mångsbodarna virðist furðu erfiður. Við biðum í ofvæni eftur fjallkonunni, og hún skilaði sér í tíma !!. Hún var brjóstvörn okkar bræðra og máttarstólpi um árið og vís til stórra afreka í brautinni eins og frændfólk hennar allt.

Ég sé ykkur í anda í sporinu og man þetta furðuvel frá stöð til stöðvar. Það er óneitanlega smá fiðringur í maganum því þetta var ótrúlega skemmtileg lífsreynsla og sú langflottasta !!!

Það er meira en að segja það að fara þessa leið, því læt ég eina ferð duga. - þó þetta sé bara bæjarleið!!!

Við sendum baráttukveðjur í brautina og á línuna.
Þórarinn - og Sigga.


4. mars - 11:11

Þá eru sænsku reipastrekkjararnir farnir að höggva skörð í okkar raðir.

Svíarnir hafa staðfest að Sissý sé hætt í Mångsbodarna og ritstjóra sýnist Jói líka hafa komið of seint þangað. Ekkert hefur enn spurst til Bláa Lótusins.

4. mars - 10:59

Nú magnast spennan í Mångsbodarna. Allir austmenn komust yfir línuna og standa þokkalega, en ekki hefur borist staðfesting á öllum fjölskyldumeðlimum. Þó virðist Sigurður hafa skilað sér yfir línuna, en síðan hætt skv. upplýsingum sænskra (líkt og í fyrra).

Enn vantar upplýsingar um Sissý, Jóa og Skúla.


4. mars - 10:35

Kæru frænkur og Dóri!

Gangi ykkur vel og skemmtið ykkur vel, mjög vel.
Og hafið gaman af þessu skíðamóti.
Videoið af Sissý var fyndið..úhhhahhh.
Kveðja Eyþór og Frans


4. mars - 10:30

Hjá flestum "okkar keppenda" er aðalkeppnin ekki um sæti, heldur að komast alla leið. Helsti ógnvaldur í því efni er reipið ógurlega sem strekkt er yfir tímatökustöðvar að ákveðnum tíma liðnum.

Ritstjóri hefur ákveðið að gera smá tilraun með að gefa yfirlit yfir stöðu keppenda í brautinni og viðmiðun á tíma er gefið upp lauslega reiknað hversu mikið forskot viðkomandi hefur á reipið, þ.e. hversu mikill tími er enn upp á að hlaupa áður en reipið er strekkt.

Það eru helst fyrstu þrjár tímatökustöðvarnar sem fanga menn í reipið, eftir það er það úthaldið sem ræður mestu um framvinduna.

Vonandi mælist þessi tafla vel fyrir...


4. mars - 9:20

Blessuð!

Bestu kveðjur héðan úr Mosó....loksins er farið að snjóa úti og manni nánast ýtt út til að Vasast ..

Ekki á menn leggjandi,
er þó við tölvu að masa.
konan kallar eggjandi,
Er ekki betra að vera heima hjá sér.

(Þetta rímar í snjóflóði)

Jæja núna er hætt að snjóa, þetta var bara sýnishorn...

Hei hupppa hei áfram, áfram aldrei að stoppa.


4. mars - 9:10 (skeyti sent 4:25)

Godan dag kaeri ritstjori

Jaeja nu sitjum vid i bilnum a leid fra Gopshus ad rasmarkinu i Sälen. Hafragrauturinn rann ljuflega nidur med baetiefnum og numer og chip komid a sinn stad. Allur mannskapurinn var otrulega ferskur og greinilegt ad B manneskjurnar i hopnum foru hljodlega um eda villa a ser heimildir med ferskleika og fimmaurabröndurum.

Nu fer einbeitingin ad aukast er naer dregur alvaran blasir vid. Nu vaeri gott ad hafa Lalla brodir til ad kyrja og tengja okkur vid modur jörd enda verdum vid mjög jardbundinn i sporinu i allan dag og fram a kvöld mörg hver. Annars virdast adstaedur allar vera hinar bestu, logn, skiad og 3 C frost, th.a. Sporid gaeti verid gott framan af degi. Sem sagt spennandi.

Kv. Dori

(Myndirnar sem fylgdu birtast innan skamms).


4. mars - 9:05

Þá er ritstjóri risinn og hlaupið hafið. Okkar fólk er mikið til að verða komið gegnum fyrsta tímatökuhliðið og þá er lokið örtröðinni sem einkennir löngu brekkuna í upphafi hlaups þar sem meira eða minna allt stendur fast (a.m.k. í bláberjaþvögunni).

Eitthvað hefur borist af tölvupóstum núna í morgunsárið og verður þeim bætt inn fljótlega, en nú er bara að fylgjast reglulega með tímum þeirra sem hugurinn fylgir helst. Ritstjórinn sér fram á annasaman dag, en mun reyna að setja inn allar kveðjur þegar þær berast og gefa yfirlit yfir stöðu mála í brautinni á ca. klukkutíma fresti.

Nýjustu fréttir úr sporinu

3. mars

Þá er dagur að kveldi kominn og mannskapurinn smám saman á leið til koju.

Síðasta kvöldmáltíðin var haldin í sameiningu og vorum við lítið eitt fleiri en Jesú og lærisveinarnir forðum daga, eða 15. Indælis lasagna og spagetti ragu voru á boðstólum og var dreypt á vígðu vatni og örlitlu messuvíni, svona upp á stílinn.

Hárfíns glímuskjálfta gætti, en allir báru hann vel og var fliss með minnsta móti. Þó höfðu Heddý og Anna Kristín á orði að kitlið í maganum minnti þær á Moonboots jólin forðum daga.

Fyrr um daginn fórum við með skíðin til Mora í vallningu og sáu Intersport-sérfræðingarnir um þá hlið mála. Ekki voru þeir þó óskeikulir blessaðir og gleymdu festu undir sum skíðin og háflúor rennsli undir önnur. Vökul augu Vasafara tryggðu þó að allt fór vel að lokum og eru nú bæði skíði og stafir klár fyrir átökin.

Sum okkar fóru og skoðuðu startið í Sälen í dag en aðrir slöppuðu af í Gopshus. Semsagt allt í góðu standi og allir klárir í átökin. Við sendum okkar bestu kveðjur til allra sem sent hafa okkur hvatningu og til þeirra sem hugsað hafa til hópsins. Sérstakar kveðjur frá þjálfararnir Jimmy og Auður.

Kveðja, Dóri

Baráttukveðjur frá Hjölla og Tótu

3. mars

Ágæta frændfólk og vinir í Vasa. Við sendum ykkur baráttu og stuðningskveðjur úr Hafnarfirðinum. Á þessari stundu; kvöldið fyrir göngu vitum við að einbeitingin er í hámarki sem og kolvetni í vöðvum og glýkógen í lifur. (meltingarfæri og nýru hafa líka haft úr miklu að moða). Þið eruð tilbúin í átökin. Í fyrramálið takið þið ykkur stöðu og líkt og stóðhestar - titrandi á ráspól og tryllt í átök.

Það drýpur regn úr skýjum í dalabyggðum fram
því dynur loft, að hófar skýin troða.
Nú heyri ég hann fnæsa, minn fleyga hlaupagamm,
og fóstra sínum helreiðina boða.

Krakkar mínir ekki vera hógvær í byrjun, sýnið sænskum enga miskunn í brekkunni. Það er óskemmtilegt að vera síðastur í Vasagöngunni (tala af reynslu); líta til baka og sjá mæður hlaupandi á eftir börnum og villuráfandi hunda í annars auðum skiðagöngusporum, en rúmlega 16.000 manns fyrir framan sig. Hugsið ekki að eftir séu 90 km. Það eru bara 10 km til Smågan og annað eins til Mångsbodarna og þá styttist í Risberg og þá er gangan brátt hálfnuð. Á hverri stöð vitið þið af stuðningi og hvatningu.

Ég kem á alla bæi, en borgið er mér þá,
ef börn og konur syngja mig úr hlaði.
Í plægðan akur bændurnir sögðu sínar skrá.
Mín saga rúmast öll á visnu blaði.

Leiðbeiningar til liðsins á línunni: hafa mola til taks, íslenska fána, fagnaðar- og stuðningshróp - og verið reiðubúin að veita bráðanudd á kálfum og lærum, jafnt innan sem utan. Íbúfen með kóki getur einnig komið sér vel.

Þegar Evertsberg sleppir taka við aflíðandi ásar og leiðin til Mora styttist óðum. Njótið rennslisins og látið þreytu líða úr skrokkunum við hvert tækifæri.

Nú dynur hátt í fjöllum hið djarfa hófaglamm.
Nú drýpur á mig sveitinn, mélafroðan.
Við stefnum móti ljósinu,leitum upp og fram,
til landsins, sem er bakvið morgunroðann.

Hjölli og Tóta

ps kveðskapur er Davíðs Stefánssonar.

Kveðja frá Auði skíðakennara

3. mars

Mig langar til að óska öllum góðs gengis fyrir átökin á morgun og þá sérstaklega öllum þeim sem hafa verið hjá mér í kennslu.

Mikið væri nú gaman að vera með ykkur og þá meina ég að vera á hliðarlínunni en ég mun taka þátt seinna (minn tímin mun koma) ha, ha. Fékk nú bara í magann við það að skoða myndirnar......frábær snjór, æðislegt spor og þið gætuð ekki litið betur út með neista í augum og hreystin uppmáluð.

Ég mun fylgjast með ykkur á morgun og senda ykkur mína bestu strauma, með kveðju Auður skíðakennari.

Kveðja Austmanna - daginn fyrir gönguna

3. mars

Æfingar hafa gengið vel, bæði til sálar og líkama. Því miður einn veikur en hliðarlínuliðið styrkist sem því nemur.

Fengum leiðsögn hjá Vasa-Matthiasi, sem er bróðir Gunde Svahn, þess heimsfræga kappa. Matthias hefur gengið þessa 90 km á tæpum 4 klst og varð fjórði. Hann fullyrðir að Fljótsdalshérað sé meðal drýgstu þátttakenda í Vasa göngunni miðað við íbúafjölda. Matthias ætlar að smyrja skíðin á morgun fyrir gönguna.

Við munum gera okkar allra besta á morgun og aðeins betur en það, enda upp með okkur af fréttum um áheit á okkur í þágu HSA - Egilsstöðum. Óskum öllum Vasaþátttakendum gleði og góðs gengis á morgun.

Austmannaliðið.

Hugsað til baka

2. mars

Sælinú vasaáhugamenn nær og fjær.

Ég er nú ekki mikill ljóðamaður, en andinn kom yfir mig og ég fann mig knúinn til þess að henda í eina stutta:

Hugsað til baka

Í skítafrosti og kvíðakasti, lagði ég af stað.
Typpið eins og rúsína og frekar langt í hlað.
En tíu tímum seinna, og einu ári betur,
slátrið orðið eðlilegt og aftur kominn vetur.
Þá spyr ég nú með samviskuna tandurhreina og tæra:
Hvað er fucking að ykkur, ætliði ekki að læra?
Þótt freistandi sé rásmarkið í frosnu næturhúmi,
djöfull er ég sáttur við að liggja heima í rúmi!

Engu að síður, baráttukveðjur úr Hnjúkaselinu. Þetta er vont, en það venst og verður að lokum æðislegt.

Kveðja, Hannes Þór

Fleiri fréttir úr sporinu

2. mars

Sæll frændi,
Í dag byrjuðum við daginn á ristuðu brauði og Carboload fyllingu og tei með Carboload ásamt hafragrauti með Carboload.

Fórum síðan nokkur (Dóri, Sissý, Heddý, Bjarni og Jói) til Mångsbodarna og mátuðum sporið. Við fórum 8-10 km í rólegheitunum í dásamlegu veðri og góðu spori. Töluvert aðrar aðstæður en í hraunnibbunum í Bláfjöllunum.

Jói mátaði sporið í fyrsta sinn síðan í fyrra. Formið og fílingurinn er mun betri en í fyrra og hann er til alls líklegur.

Síðar um daginn mátaði hópurinn sem kom í gær sporið og gekk frá Gåpshus til Hökberg. Blái lótusinn (Skúli) hefur engu gleymt og var funheitur í sporinu. Svarta mamban (Nonni) leiddi gönguna og hitaði sporið fyrir hópinn.

Voru menn sammála um að heimamenn hafi orðið smeykir er breiðfylkingin birtist í Hökberg klárir í kaffi og smörgås.

Að loknum kvöldmat sem samanstóð af pastarétti og Carboload var kvöldvaka þar sem sungnir voru sálmar og kyrjað. Lítið var um hlátur og spaug, enda staðan grafalvarleg.

Halldór, fréttaritari sem ritar frá sporinu.

Myndir frá deginum í dag.

Meira frá Vasapabba

2. mars

Kominn er föstudagur, dagur slökunar og undirbúnings hjá vasagöngumönnum. Þeir sem hafa ekki þegar gert það sækja skráningargögnin sín. Svo þarf að útvega það sem á vantar í búnaðinn, tryggja sér smuningu á skíðunum, drekka kolvetnadrykki og losa vatn og vinda sem þeim fylgir. Síðustu innkaupin eru erfið, þarfir, löngun, glímuskjálfti og múgsefjun togast á og valda valkvíða.

Siggi og Magga flugu út í gærmorgun ásamt Skúla og Jóhannesi. Siggi tók 9 manna smárútu á Arlandaflugvelli sem verður aðal flutningstæki hópsins í Gopshus auk minni bíla sem fyrir eru.

Austmenn hafa lokið skíðanámi og æfingum. Eru búnir í áföngum að fara um mest af brautinni og enduðu á miðvikudag á því að ganga milli Evertsberg og Gopshus líkt og Gopshushópurinn gerði í gær. Gunni og Bjarni óku hópnum og gengu svo á móti.

Í Gopshusgården þar sem við dvöldum í fyrra er allt við það sama, Ingimar, kona og dóttir hin hressustu og hinn aldni, brosmildi og stamandi fastagestur, Bengt (?) mættur á svæðið. Pest og gallaðir skíðaskór hafa valdið truflunum á undirbúningi en vonandi leysast þau mál farsællega.

Austmennin og þeir sem búa í Gopshus biðja fyrir kærar kveðjur heim og finnst gott að vita hve margir fylgjast með á heimasíðunni og hugsa til þeirra með óskum um góðan dag í sporinu á sunnudaginn.

Stebbi

Fréttir úr sporinu

2. mars

Eftirfarandi skeyti (og myndir) bárust í gær frá fréttaritara Vasavefsins á vettvangi.

Mannskapurinn sem kom í gær mátaði sporið í dag og gengum við frá Evertsberg til Gåpshus. Allt gekk vel og öll kerfi starfa eðlilega.

Sporið var nokkuð þungt enda bara troðið af treimur svisslendingum sem reyndu án afláts að stinga okkur af.

Ritari Árósadeildarinnar (Palli) var óstöðvandi og stakk hópinn nánast af. Er ljóst að hann hefur drukkið úr viskubrunni Gunnars formanns enda Vasaveteran og reynslubolti í þessum efnum. Fjallkonan og systir hennar skörtuðu léttum og skemmtilegum stíl í sporinu og eru greinilega til alls vísar á sunnudaginn. Ekki voru þær mæðgur Bogga, Anna Kristín og Sísí síðri og mössuðu Evertsbergbrekkuna.

Svarta mamban (Nonni) kom sterkur inn og toppaði daginn með kaupum á nýjum skíðum í Mora. Ljóst að Blái lótusinn (Skúli bróðir) fær harða keppni.

Seinnipartinn kom restin af hópnum (Siggi, Magga, Skúli og Jói) og var mjög viðeigandi reunion við keppnisgagnastandinn.

Kv. Dóri

Myndir af æfingum og vídeó af Sissý í brautinni.

Kveðja frá Bryndísi

1. mars

Vasa-liðið 2007

Hvað ég hugsa til ykkar!
Nú fer að koma að orkuhleðslu og loka smurningu.
Og hugsanir eins og flensa og fleira þjóta í gegnum hugann.

Skal með glöðu geði taka að mér allan kvíða ef einhver er hjá ykkur og setja tilhlökkun í staðinn.

Því þetta er allt saman á einhvern hátt gaman!

Baráttukveðjur, fylgist grannt með ykkur,
Bryndis Kristiansen (sem fór 45 km í fyrra.)

Pistill Stebba Vasapabba

28. febrúar

Heill og sæll ritstjóri

Þá er þriðjudegi í Vasaviku lokið með glæsibrag. Mikið langar mig að vera komin út til þeirra þarna í Svíþjóð! Maður er hálf friðlaus hér heima, eins og fiskur á þurru landi. Fylgst er með hverri tölu og hverri færslu á Vasavefnum. Bið ég sem flesta að senda ritstjóra kveðju eða vísukorn.

Björn Már Ólafsson félagi okkar frá í fyrra og reyndur vasakarl gekk opið spor á mánudag sbr. pistla Bjarna Björgvinssonar. Björn skeiðaði þessa 90 km á glæsilegum tíma eða 8 klst. 25 mín. og 49 sek. Það hefur aldeilis verið skrið á karli og hann setur okkur fúskurum viðmið sem erfitt verður að keppa við!

Hjölli fór Hálf-vasa í gær á 4:04:12 og Tóta á 4:51:03 eins og fram hefur komið. Tóta bætti tímann frá í fyrra um 3 mínútur en færið var fremur þungt að sögn og fóru margir þeirra sem voru í kappi við klukkuna hægar yfir í gær en hugur stóð til. Hjölli kemur heim með Tótu í dag og gefur Vasagöngunni frí þetta árið.

Alls voru 10 íslendingar skráðir til leiks í Hálf-vasa og 7 luku keppni. Sá sem hraðast fór var Óskar Jakobsson á 2:53:45. Í fyrra fór Sveinn Ásgeirsson Norðfirðingur Hálf-vasa á 2:38:38, Dóri bróðir á 3:08:06, Sissý á 4:48:49 og Tóta á 4:54:18. Færið var mjög gott í fyrra.

Það er ekki til þess að gera lítð úr þeim hjónum að ég vil draga fram í Vasa-ljósið (!) kappa einn frá Ísafirði, Elías Sveinsson, sem gekk í gær Hálf-vasa. Ég hitti hann uppi í Hlíðarfjalli fyrir rúmri viku þar sem hann var bílstjóri með keppnishóp frá Ísafirði. Hann kemur við sögu okkar bræðra því hann lenti í því árið 2004 þegar við bræður gengum saman sælla minninga að detta í sporinu og viðbeinsbrotna. Varð hann því að hætta þá en nú var karl mættur aftur til þess að ganga það sem upp á vantaði og gerði það með stæl, hann gekk á 3:35:43.

Elías ætlar svo líka í Vasagönguna á sunnudaginn. Það má geta þess að hann er fæddur 1939 og á margar Vasagöngur að baki.

Í dag flýgur Dóri út með Sissý fjallkonu, Herdísi mágkonu og Bjarna svila. Nonni fer líka utan í dag sem og Borghildur með dætur þeirra Palla (Sigurpáls) þær Sigurbjörgu og Önnu Kristínu. Palli kemur akandi frá Danmörku ásamt Gunna vasakappa sem lætur sér nægja að vera á línunni þetta árið og miðla af reynslu sinni enda innvígður í flokk reynslubolta. Fylgja þeim öllum góðar kveðjur.

Mínir menn, austmenn, liggja í æfingabúðum og læra að ganga á skíðum. Það segir Hjálmar Jóelsson að sé mjög gott veganesti fyrir Vasagönguna. Fyrir utan smávegis agavandamál með bláberin, Kalla, Helga, Þór og Kristófer, sem ekki vilja hlýða forsjá Óttars og Péturs alveg skilyrðislaust í öllu er hljóðið í þeim mjög gott og þeir biðja fyrir kveðjur heim ásamt Lollu, Ragnari og Júlíu.

Með bestu kveðjum og örlítilli öfund.
Stebbi vasapabbi

Fjörið er hafið!

27. febrúar - 13:07

Þá er þátttöku okkar fólks í Hálf-Vasa lokið.

Hörleifur kom í mark eftir 4 klst. og 4 mínútur (sem þýðir að litli bróðir hans heldur enn fjölskyldumetinu í Hálf-Vasa, 3:08).

Bergþóra lauk göngunni á 4:51 sem er bæting frá því í fyrra en þá gekk hún á 4:54.

Ritstjóra skilst að líklega hafi ekki verið neinir hliðarlínungar í Gopshus, en það mun breytast á sunnudag þegar "aðal-sjóið" verður. Þá verður fréttavakt meira eða minna allan daginn með tíðindum af glímu keppenda við færðina, sjálfa sig og reipisstrekkjara.

Ritstjóri óskar þeim hjónum til hamingju með afrekið og kveður að sinni.


27. febrúar - 12:08

Hjörleifur er kominn gegnum Eldris og Tóta var að renna í gegnum tímatökuhliðið. Rafrænar sænskar völvur gera ráð fyrir Tótu í mark eftir klukkutíma og að bóndi hennar verði kominn í markið áður en hádegisfréttir RÚV hefjast.

Ritstjóra barst í morgun eftirfarandi frá Bjarna Björgvins:

Í gær lauk Björn Már göngunni í Öppet spår á tímanum 8.25.49. Talaði við hann eftir gönguna og hann var eldhress og blés varla úr nös. Áfram Ísland.

Bjarni G. Björgvinsson


27. febrúar - 11:00

Hjörleifur heldur jöfnu tempói, fór gegnum Hökberg fyrir hálftíma og er reiknaður í mark 12:11 (ísl.). Tóta heldur einnig góðu tempói og fór gegnum Hökberg 14 mínútum fyrr en í fyrra.

Ef ritstjóra misminnir ekki um staðhætti eru hjónin þá búin að fara um hlaðið í Gopshus, hvött af þeim í hliðarlínugenginu sem eru mættir. Gaman væri að fá yfirlit frá staðkunnugum um það hverjir eru komnir út. Netfang ritstjóra er neðst á síðunni.


27. febrúar - 10:00

Hjónin eru bæði komin gegnum Oxberg. Hjörleifur var 14 mínútum á undan frúnni, og hún er með 18 mínútum betri tíma en í fyrra. Nú reikna sænskir með Hjölla í mark kl. 12:09 að íslenskum tíma og Tótu 12:48.


27. febrúar - 9:00

Klukkan hálf-átta að íslenskum tíma bárust skilaboð af ráslínu Hálf-Vasa um að Hjörleifur og Bergþóra biðu þar ræsingar, með uppsöfnuð kolvetni flæðandi út um eyrun.

Samkvæmt tímatökuvefsíðunni fóru þau svo yfir rásmarkið klukkan 9:13 að staðartíma. Eitthvað hefur Hjörleifi legið meira á, því hann var kominn 15 sek. fram úr frúnni þegar farið var yfir línuna. Fróðlegt verður að sjá hvort hún hefur unnið það forskot upp þegar þau fara í gegnum tímatökuhliðið í Oxberg.

Ritstjóri hefur ekki haldbæra áætlun um hvenær þess er að vænta, svo það er bara að kíkja reglulega á vefinn. (Í fyrra fór Tóta gegnum Oxberg kl. 10:10 að íslenskum tíma).

Heja, heja.

Kveðja frá Bjarna Björgvins

26. febrúar

Ég sit á Egilsstöðum og dauðöfunda félaga mína “(hr) Austmenni” eins og Pétur Heimisson nefnir þá austfirðinga sem fara í Vasagönguna næsta sunnudag.

Þessi bilun sleppir ekki af manni tökunum og ég fylgist daglega með fréttum á Vasalopps-vefnum þegar gangan mikla nálgast. Í dag 26.feb. er reyndar leiðtogi vor frá fyrra ári Björn Már Ólafsson, sá margreyndi Vasagöngumaður, að ganga 90 kílómetrana í Öppet spår og fer eflaust létt með það, en hann verður farinn frá Svíþjóð þegar Vasagangan fer fram.

“Heimavarnarliðið” sendir honum og öllu Vasagöngufólki og ekki síður hliðarlínugenginu bestu kveðjur og ég mun fylgjast grannt með tölvunni þann 4. mars nk.

Bjarni G Björgvinsson

Frá Ragnheiði Helgu Þórarinsdóttur

25. febrúar

Það verður gaman að fylgjast með enn og aftur hvernig frændur, vinir og vandamenn, svo ekki sé minnst á soninn, standa sig n.k. sunnudag. Við Hans höfum fjárfest í Skjánum til að geta horft á frændur okkar Svía í tellýinu alveg frá byrjun eins og í fyrra. Það þýðir lítið að horfa á þýskt sjónvarp sem sýnir síðustu tvo tímana af Vasagöngunni og byrjar kl. 11 að íslenskum tíma! Þá eru okkar menn einhvers staðar tugi kílómetra frá markinu.

Það er annars merkilegt hvað ólíklegustu perónur fá mikla andagift og gerast hagyrðingar (öllu má nú nafn gefa) í tilefni af göngunni miklu - meira að segja undirrituð.

Frændur, feður og synir,
flykkjast til Vasa á ný.
Mágkonur, mæðgur og vinir.
mega sig herða á ný.

Við skíðagönguna góðu
þau þenja sig í kapp
við klukku, í þokumóðu
þau leggja af stað í hnapp.

Þeir sem heima dvelja
glápa á TíVí og tölvu
til skiptis og mínutur telja
gott væri að leita til völvu.

Til að fá úrslitin!

Gangi ykkur öllum vel, bæði í hálfri Vösu og heilli.
Ragnheiður Helga

Kveðja Austmanna

23. febrúar

Sæll Þórarinn.
Ég mæli fyrir okkur Vasa - austmenni (rímar við hraustmenni), þegar ég þakka þér fyrir þessa skemmtilegu síðu, hún er frábær.

Ég er kominn til höfuðborgarinnar með Lollu konu mína og son okkar Ragnar. Þau verða meðal annarra í hinu mikilvæga hliðarlínuliði 4. mars nk. og þar verður líka Júlía kona Óttars. Hliðarlínuliðið í fyrra sem samanstóð einkum af Þórarinssonaleggnum kom mér beinlínis í gegnum gönguna með nesti og nýjum klæðum og síðast en ekki síst notalegheitum og hvatningu af hliðarlínunni.

Við Vasa-austmenn fljúgum svo til Stokkhólms sunnudaginn 25. febr. Allir búnir að þjálfa vel, a.m.k. þegar miðað er við þjálfun okkar í fyrra. Við fjárfestum í vélsleða og notum hann til að troða braut á Fjarðarheiði. Félagið sem að sleðanum stendur heitir Viking Group og hafa hlutabréf heldur hækkað í verði eftir því sem nær hefur dregið VASA. Reikna spekúlantar fyrir austan með sprengingu í þeim efnum 4. mars. Það kemur bara í ljós.

Meira síðar,
Kveðja, Pétur Heimisson

Keppendalistinn tiltækur

21. febrúar

Þá er búið að gefa út tímatökunúmer og þátttakendalistinn birtist hér til hliðar, grófflokkaður eftir fjölskyldum og fjölskyldutengslum.

Ekki er ólíklegt að eitthvað hafi slæðst inn af villum, vinsamlega sendið línu á ritstjóra ef þið verðið vör við slíkt: ritstjori@vasa.thorarinn.com

Vísukorn frá Suomi

20. febrúar
Í Vasagöngu víst ég vil ... aftur!
vandlega æfi, mig haldin er firra.
Í sjálfum mér samt ekkert skil ... aftur!
skráði ég mig ekki líka í fyrra?

Halldór Þórarinsson, staddur í Finnlandi

Pistill fjallkonu

20. febrúar

Tíminn fram að Vasagöngunni þann 4.mars styttist óðum og ekki laust við að ákveðinn fiðringur fari um skrokkinn þegar hugsað er til þess sem er framundan.

Þegar þetta er skrifað er komið að þeim tíma sem þátttakendur eru byrjaðir að trappa sig niður í æfingum fyrir átökin. Eftir stífar æfingar er það ljúft að geta leyft sér að liggja í heitu pottunum án þess að þurfa að synda nokkuð og borða mikið pasta og annað ljúfmeti án nokkurs samviskubits næstu dagana.

Hópastarfið í ár hefur verið með minna móti, Vasagöngumenn hafa verið að æfa hver í sínu horni, menn hafa hist í Bláfjöllunum þegar færi hefur gefist. Nokkur skipti náðust með Auði skíðakennara svona rétt til að rifja upp taktana og fara yfir stílinn. Einhverjir úr hópnum hafa nýtt sér skíðasvæði annarsstaðar á landinu, bæði fyrir vestan og norðan til að bæta aðeins upp aðstöðuleysið hér á Reykjavíkursvæðinu. Þar fyrir utan hefur mikið verið svitnað í hinum ýmsu líkamsræktarstöðvum og hver og einn verið með sitt prógramm í gangi.

Í ár fara þrír bræðranna í gönguna, þeir Siggi, Hjölli og Dóri. Undirrituð ætlar að reyna við heila göngu. Auk þess fylgir Sigga hópur af fólki bæði eiginkona, synir og annað tengslafólk. Samtals eru Vasagöngumenn í hópnum tólf og verða númer allra birt hér á síðunni þegar nær dregur.

Birna Þórarinsdóttir ætlaði einnig að taka þátt í ár en vegna starfa í Bandaríkjunum ákvað hún að geyma Vasagönguna í bili.

Hjölli og Tóta verða fulltrúar fjölskyldunnar í Hálfvasagöngunni þann 27.febrúar. Til stóð að Tóta færi í Vasagöngunna en vegna annarra starfa varð hún að fresta þátttökunni í þetta sinn. Í hennar stað kemur nýr meðlimur í skíðahópinn. Það er Herdís Wöhler og með henni kemur þessi líka fíni bílstjóri, línumaður og fánaberi, eiginmaður hennar, Bjarni. Eru miklar væntingar gerðar til hópsins á línunni sem verða þau Magga mágkona, Gunnar Sigurðsson Vasafari 2006 og Bjarni bílstjóri.

Með kveðju
Sissý (fjallkona)

Vasa 2007 nálgast

13. febrúar

Þá fer að styttast í Vasagönguna 2007 og enn sem fyrr eru Þórarinsson-ættin og fylgifiskar ýmsir fjölmennir.

Hálf-vasan er þann 27. febrúar og heil-vasa 4. mars.

Hér verður hafður á svipaður háttur og í fyrra og fylgst með gangi mála. Þátttakendalistinn mun birtast hér til hliðar þegar sænskir reiknimeistarar hafa gefið út hvaða tölvunúmerum skal leitað eftir.

Glöggir gestir taka e.t.v. eftir að farin er ódýra leiðin í endurhönnun útlits. Þetta kallar yfirhönnuður póstminimalísk vinnubrögð og harðneitar að skammast sín fyrir.

2006 vefurinn er enn aðgengilegur fyrir fornleifagrúskara.

Ritstjórinn.

Netfang ritstjórnar: ritstjori@vasa.thorarinn.com