Vasabræður 2004
Forsíða
Dagbók
Fróðleiksmolar
Leiðarlýsing
Vasa-vísan

Vasaloppet.se
Á keppnisdag

(Tölvupóstfang bræðranna hefur verið aftengt)

Aðsend hvatningarvísa:
Eiðabræður einbeittir
eru menn sem þora.
Gangið hægt um gleðidyr
en gallharðir til Mora!
Össur Kristinsson

Fara á vef Vasahlaupsins

Lestu dagbókina!

Æfingaferð til Akureyrar!
Helgin 16.-19. janúar

Það var eins og veðurguðirnir hefðu virkilega hlustað á bænir okkar um miðjan janúar. Við höfðum fylgst grannt með veðri og snjóalögum fyrir norðan í nokkurn tíma og var ljóst að okkar vegna mátti alveg bæta aðeins í. Það var eins og við manninn mælt, um miðja vikuna skall á stórhríð og kolvitlaust veður og snjónum kyngdi niður í það miklum mæli að meira að segja norðanmönnum fannst nóg um. Snjórinn var kominn og þá var ekkert til fyrirstöðu að brjótast yfir heiðar til Akureyrar og takast á við stíft æfingaprógramm sem beið þeirra bræðra.

Sérlegur þjálfari, Ingvar læknir á Akureyri hafði verið kallaður til, þeim bræðrum til leiðsagnar. Að mati þeirra sjálfra aðallega svona rétt aðeins til að fínpússa stílinn. Hvað um það þá var þarna kominn maður með reynslu og reyndist þeim bræðrum hafsjór upplýsinga og góðra ráða. Verður hans þáttur í tilþrifum bræðranna seint fullþakkaður.


Bræðurnir Thorarinsson með þjálfaranum Ingvari lækni.

Þegar ferðalangar höfðu komið sér fyrir á föstudeginum í húsum í Kjarnaskógi og Hörpulundi, nartað aðeins í Wasa hrökkbrauð með kotasælu og bláberjasultu og innbyrt örlítið af upphitunarvökva var tímabært að mæta á fyrstu tækniæfinguna með þjálfaranum. Þeir komu sveittir, rjóðir og kátir tilbaka seinna um kvöldið, beint í heita pottinn þar sem æfingin var analíseruð og farið yfir málin. Það var þó ekkert hangs á strákunum því nú biðu tvær æfingar á laugardeginum og ekki til í dæminu að dúlla sér eitthvað fram á nótt í heitum potti heldur var farið í bólið á guðlegum tíma svo að krafturinn yrði 100% daginn eftir.

Á laugardagskvöldið var prótín og kolvetnaskammturinn endurnýjaður í Hörpulundinum hjá stóru systur og dreypt á dýrindis ávaxtasöfum ýmis konar. Sem fyrr var gorgeirinn í þeim bræðrum síst minni, og var það að skilja á þeim að þetta væri svo til unnin keppni, bara spurning um það hver raðaði sér í efstu sætin.


Ýmsar aðrar styrktaræfingar voru stundaðar á Akureyri. Hér sýnir Siggi tilþrif við stungu úr potti í skafl við geysilegan fögnuð áhorfenda sem sátu sem fastast í heita pottinum.

Það var skemmtilegt að fá að fljóta með þeim bræðrum í þessa æfingaferð, sjá kappið, viljann og styrkinn eflast svo um munaði. Það besta við allt þetta brölt í þeim er, að þetta er allt svo skemmtilegt, góða skapið og léttleikinn er í fyrirrúmi sama hvað puðað er og púlað.

Sissý


Aftur í efnisyfirlit