![]() |
|
Forsíða
Dagbók Fróðleiksmolar Leiðarlýsing Vasa-vísan Vasaloppet.se Á keppnisdag (Tölvupóstfang bræðranna hefur verið aftengt) Aðsend hvatningarvísa: |
Gígamyndun í Bláfjöllum! Frá fréttaritara hópsins: Kom þá skýringin í ljós. Lítill hópur manna hefur verið að stunda æfingar á svæðinu og þótti starfsmönnum ljóst að á vissum stöðum og þá helst í brekkum með miskröppum beygjum, færu skíðin hraðar en skíðamennirnir og stundum í aðra átt. Botninn hefur í þessum tilfellum orðið eftir í beygjunni en skíðin farið á undan. Við þetta kútveltast menn í beygjunum og rústa alveg brautinni fyrir þeim sem í sakleysi sínu koma í kjölfarið og lenda því út í móa, því brautin er máð út á stóru svæði. Er þá ennfremur komin skýring á vangaveltum manna í Kjarnaskógi frá því um miðjan janúar, þegar menn urðu varir við svipuð náttúruundur. Við þessu er lítið að gera annað en að sýna mönnum þolinmæði og vona að á næstu æfingu fylgi bossinn með í beygjunni.
Myndirnar eru teknar í Bláfjöllum 25. janúar og ekki er sannað að þær tengist efni fréttarinnar. Aftur í efnisyfirlit |